Á bls. 16 í 24 stundum er fróðlegur pistill eftir Óla Gneista Sóleyjarson um ný útkomna biblíu ríkiskirkjunnar.  Ég hef nú tekið þá afstöðu hingað til að þegja þunnu hljóði í þessari orrahríð öfgamanna og frjálslyndari trúmanna á hinn bóginn. Þó hef ég ekki komist hjá því að heyra í fjölmiðlum eitt og annað skondið og skemmtilegt um breyttar meiningar og textafölsun.  Hæst ber þar umræðuna um fyrra korintubréf Páls postula og fordæmingu hans á samkynhneigðum karlmönnum.
Þar deila menn um hvort Páll hafi skrifað af guðdómlegri innspýtingu eða hvort hann hafi einfaldlega verið einn af þessum sjálfskipuðu öfgamönnum þess tíma.  minna tala sömu menn um nýja testamentið og undarleg orð Jesú.  Óli Gneisti tekur tvö dæmi í pistli sínum, annars vegar matteusarguðspjall þar sem jesús sagðist ekki færa frið heldur sverð og í Lúkasarguðspjalli tók hann fram að fólk þyrfti að hata foreldra sína til að geta fylgt honum.
Já það er margt af mörgu í blessaðri biblíunni og nú reyna nútímalegir framsýnir menn að staðfæra guðspjöllin og sápuþvo til að við nútímafólk höldum trúnni...   Ég er mikið sammála Óla Gneista og hvet mína til að lesa pistilinn atarna. Hann er góður og eins og ég hef alltaf spurt: Hverjir skrifuðu Biblíuna? Alla vega ekki drottinn sjálfur. Og hvergi er skjalfært að hann hafi valið til þess hóp öfgamanna.
Sá nýverið tvö leikverk í Þjóðleikhúsinu. Annars vegar Óhapp eftir
Bjarna Jónsson. Mjög óvenjulegt drama sem gerist á heimili ungra hjóna
og er um leið stúdíó í sjónvarpssal. Rosalega sérstök og skemmtileg
sýning þar sem lífið er í beinni útsendingu. Nokkurskonar
raunveruleikasjónvarp á sviðinu.  Frábær sýning og fantagóður
leikur. Mæli með þessari.
Ég sá líka Hálsfesti Helenu þar sem
Edda Arnljótsdóttir leikur aðalhlutverkið.  Verkið gerist á götum
stórborgar í austurlöndum nær.  Ég var ekki eins hrifin af þessari
sýningu.  Náði einhvernvegin ekki til mín. Ég veit þó að hún hefur
fengið góða dóma. Alla vega mér fannst þetta ekki nógu
sannfærandi.  Samt fannst mér leikararnir standa sig mjög
vel.  Það var bara eitthvað sem ekki gekk upp að mínu mati.
Næst ætla ég að sjá Hamskiptin eftir Franz Kafka. Ég heyrði á vinum að sú sýning sé alveg frábær.  Sjáumst í leikhúsinu.
"When in Rome, do as the Romans do".  Þetta gildir greinilega
ekki fyrir múslimakonur þó svo að til þess  sé ætlast  í
mörgum  múslima löndum að vestrænar konur  íklæðist
hijab,  til að virða  siði  þess lands sem þær eru
staddar í.  Á heimasíðu stæðsta netfyrirtækis sem framleiðir
þessar slæður kemur fram að IKEA hefur láti hanna hijab slæður fyrir
"starfskonur" sínar.  Er þetta heillavænleg þróun eða hafði
Shakespire gamli rétt fyrir sér. Skal sinn siður fylgja landi hverju?
Sjá Ikea slæðurnar hér:
http://www.thehijabshop.com/?press
Þetta er auðvitað bara fyndið.  Nú má aumingja Tinky hinn
fjólublái ekki bera handtösku. Það er svo hommalegt.  Í
yfirlýsingu frá pólska umboðsmanni barna segir að talið sé að Tinky sé
karlkyns. Hvernig er hægt að vera hvorukyns hommi?
Ég þarf
endilega að rifja upp með mömmu hvaða leikföng ég lék með þegar ég var
stelpa. Nema kanski það sé Rannveigu og Krumma að þakka að ég er
samkynhneigð...hummm..
Þetta er svo sem ekki ný hugmynd hér er margra ára gömul frétt á BBC News sem Frú Sowinska hefur örugglega rekist á:
http://news.bbc.co.uk/2/hi/entertainment/276677.stm
þeir telja sig til vestrænna þjóða.  Ekki nóg með að
mótmælafundurinn hafi verið bannaður, heldur er grimd lögreglunnar
óhugguleg.  Þetta hér er talandi dæmi um fávísa og illa uppfrædda
Jæja, mér finnst vera komin tími til að víkja frá skrifum um myndun ríkisstjórnar þetta er í flottum farvegi hvort sem er og ég þegar búin að gera mínar getgátur að því hverjir verða ráðherrar.
Rétt fyrir kosningar stýrði ég fundi fyrir Samtök 78 þar sem fulltrúar allra flokka tjáðu sig um málefni samkynhneigðra. Þar kom fram eins og áður hefur komið fram að fullur vilji er hjá öllum flokkum til þess að veita trúfélögum heimild til að gefa saman samkynhneigð pör. Fulltrúar allra flokka studdu þá hugmynd að Alþingi tæki af skarið og veitti slíka heimild.  Þetta eru mál sem þarf verulega að skoða á komandi kjörtímabili.
Á nýafstaðinni prestastefnu kom fram að 42 prestar og guðfræðingar innan þjóðkirkjunnar lýstu sig opinberlega tilbúna til að gefa samkynhneigða í hjónaband.  Það fjölgar í þessum hópi sem betur fer en á sama tíma fækkar okkur sem áður fylgdum þjóðkirkjunni að málum.  Mörg okkar erum búin að fá upp í kok og höfum sagt skilið við Biskup og kirkjuna þá ekki hafi trúin orðið þar eftir.
Nú nýverið heyrði ég af konu sem leitaði til síns prests með ráð þar sem hún hafði tekið þá ákvörðun að skilja við manninn sinn og upplifa sannleikann um sjálfa sig. þ.e. eins og kallað er að koma út úr skápnum. Klerksins ráð voru þau að bæla ÞESSAR tilfinningar áfram og halda sig í hjónabandinu. S.s. lifa áfram í falshjónabandi og ljúga að mönnum en ekki guði því hann sér allt!  Það er 2007, hvað er að og hvurs lags ráð eru þetta?  Er hægt að sækja sálarþjónustu til sjálfskipaðra þjóna Guðs sem túlka umburðarlyndi hans á þennan hátt?
Nei, eftir mörg ár í voninni um breyttar áherslur kirkjunnar þá segi ég, sínum ekki biðlund lengur og látum ekki þjóðkirkjuna ráða ferðinni hjá öðrum trúfélögum.  Þau eiga að fá að ráða sjálf og það sem meira er: Löggjöfina til lögjafavaldsins.  Hjónabandið til sýslumanns og megi kirkjan svo blessa okkur öll.
Ég fékk þessa frábæru frásögn senda frá frænku í ameríkunni og bara varð að snara henni yfir á íslenskuna þar sem sagan er verulega góð að mínu mati.
Ung kona var að endurnýja ökuskirteinið sitt á lögreglustöðinni og þjónustufulltrúinn spyr hana um starfsheiti. Konan hikar, óviss um hvernig hún eigi að skilgreina starfsheiti sitt. Þjónustufulltrúin spyr aftur: "Ertu með starfsheiti eða ertu bara…?  "Aðvitað hef ég starf segir konan þá, ég er móðir".  Við skráum nú það ekki sem starfsheiti en ég get svo sem sett, 'húsmóðir' sagði þjónustufulltrúinn og það vottaði fyrir samúð í röddinni.
Nokkrum vikum seinna var sama kona í svipaðri aðstöðu en núna á bæjarskrifstofunni.  Fulltrúinn, greinilega "career" kona spyr um starfsheiti.  Eitthvað fékk ungu konuna til að svara snögg að bragði,   "Ég er verkefnastjóri á sviði uppeldis- og mannlegra samskipta."   Fulltrúin hikaði eins og hún hefði ekki heyrt titilinn og konan endurtók hægt og rólega.  Fulltrúin skrifaði tiltilinn og einhvernvegin breyttist viðmótið á örstundu.  "Mætti ég spyrja þig hvað þú gerir í starfi þínu", sagði hún greinilega með nýjum áhuga.
Yfirveguð svaraði unga konan að bragði; "Ég stunda langtíma rannsóknir á mínu sviði (Hvaða móðir gerir það ekki?) bæði innan rannsóknarstofunnar og á vettvangi, (venjulega kallað bæði inni og úti).  Ég hef þegar fengið fjórar viðurkenningar fyrir störf mín (s.s. fjórar dætur).  Þetta starf er eitt af þeim mest krefjandi á mannúðarsviði (Er einhver mamma ósammála?).Vinnudagurinn hjá mér fer aldrei niður fyrir 14 tíma (24 tímar eru nær því).Starfið mitt er mun meira krefjandi en flest störf á sviði viðskipta en launin eru ánægja meira en fjárhagsleg. Einhver ný virðing var í rödd fulltrúans, hún kláraði að fylla út skjalið og stóð svo upp og fylgdi ungu konunni að dyrunum, opnaði þær fyrir hana og kvaddi.
Þegar konan ók inn innkeyrsluna heima hjá sér uppveðruð af þessum nýja heillandi "career" fögnuðu henni við heimkomuna þrír aðstoðamenn verkefnisins þ.e. á aldrinum 13, 7 og 3ja ára.  Uppi á efri hæðinni heyrðist í nýjasta tilraunamódelinu (6 mánaða) í verkefninu. Henni leið eins og hún hefði skorað stórt í skriffinnskuveldi kerfisins og var nú skráð innan kerfisins mun virðulegri en "bara ein mamman enn". Móðurhlutverkið! Þvílíkur ferill og sérstaklega þegar svona virðulegur titill er komin á skrifstofuhurðina (útidyrnar).
Hér vinnur:
Jóna Jónsdóttir
Verkefnastjóri á sviði uppeldis- og mannlegra samskipta.
Ég hef sjaldan lokið æfisögu á svo skömmum tíma. Margrét Frímanns hélt fyrir mér vöku þrjár nætur í röð þar sem ég gat ekki sleppt frá mér bókinni hennar. Viðburðarík æskan á Stokkseyri, flókið fjölskyldumynstur, félagsmál, verkalýðsbarátta og pólitík.  Baráttusaga konu sem barðist áfram í pólitík karlaheimsins og fór ekki varhluta af fordómum samstarfsmanna sem augljóslega voru karlkyns í meirihluta. Það er gaman að skyggnast inn í heim stjórnmálanna, heyra sögu Alþýðubandalagsins og tilurð Samfylkingarinnar frá nýjum sjónarhóli.
Til hamingju samkynhneigðir í færeyjum.  Loksins hefur tekist að vekja þingmenn upp frá værum svefni.  Engin ákvæði hafa verið í færeyskum lögum, sem banna mismunum á grundvelli kynhneigðar og hafa allar fyrri tilraunir til að lögfesta slíkt alltaf mistekist.
En nú ætla þeir að breyta lögum og ég er nokkuð viss um að undirskriftalistar íslendinga, ferð Samtakanna 78 til Færeyja í fyrra þegar þar var haldin fyrsta Gay Pride gangan hafi haft sitt að segja.
Framganga Rannveigar Guðmundsdóttur á síðasta þingi Norðurlandaráðs þar sem hún gagnrýndi færeyska stjórnmálamenn í viðbót við pólitískan þrýsting frá hinum norðurlöndunum hefur svo örugglega ráðið úrslitum í þessari skyndilegu hugafarsbreytingu sem loksins er orðin á færeyska lögþinginu.
Hægt er að lesa um færeyjamálin hér:
http://www.samtokin78.is/?PageID=30&NewsID=2341
Á hverjum degi sótti hún vatn langa leið í uppsprettu fjarri heimilinu. Annar potturinn var sprunginn eftir endilöngu og var því aðeins hálffullur þegar heim kom. Hinn potturinn var fullkominn og skilaði sér alltaf fullur af vatni eftir þessa löngu leið heim að húsinu
Svona gekk þetta í tvo ár, daglega gekk gamla konan með pottana að uppsprettunni og daglega kom hún heim með aðeins einn og hálfan pott af vatni
Auðvitað var fullkomni potturinn ánægður með sína frammistöðu en sprungni potturinn skammaðist sín og leið mjög illa þar sem frammistaða hans var aðeins til hálfs við það sem hann var skapaður til að gera.
Eftir tveggja ára vinnu talaði hann til konunnar við uppsprettuna. “Ég skammast mín fyrir frammistöðu mína, vegna sprungunnar á hlið minni lekur helmingurinn af vatninu burt á leiðinni heim. Þú ættir að henda mér og fá þér nýjan pott
Gamla konan brosti, “ Hefur þú tekið eftir að þín hlið við götuna er blómum skreytt á meðan engin blóm vaxa á hinum megin götunnar?
Það er vegna þess aðö ég hef alltaf vitað af þessum galla þínum og þess vegna sáði ég fræum á þinni hlið götunnar og á hverjum degi þegar við göngum heim vökvar þú blómin mín.  Ég hef um árabil getað týnt þessi fallegu blóm og skreytt heimili mitt með þeim.  Af því að þú ert eins og þú ert þá hef ég fengið að njóta fegurðar blómanna.
Það er eins með okkur manneskjurnar, enginn er gallalaust. En það eru gallarnir og sprungurnar sem gera hvern og einn einstakann.   þess vegna er svo spennandi að kynnast og eyða ævinni saman. Við þurfum bara að læra að taka hverri manneskju eins og hún er og sjá jákvæðu hliðarnar hjá hvort öðru.
Nú styttist í hina árlegu Gleðigöngu og má með sanni segja að samkynhneigðir muni ganga glaðir og stoltir með nýjum lögum niður Laugaveginn í ár.
Ég ætla að taka þátt í göngunni og gleðjast, en ég ætla líka að hafa í huga að Þjóðkirkjan og biskub halda fast í sitt og stóðu í vegi fyrir því að önnur trúfélög mættu gefa saman samkynhneigða.  Enda er ég og mín fjölskylda þegar búin að skrá okkur úr þjóðkirkjunni og tilheyrum nú Fríkirkjunni í Reykjavík.
Ég ætla líka að hafa í huga að í grunnskólum landsins ríkir algjör þögn um samkynhneigð og unglingar sem eru að átta sig á kynhneigð sinni, gera það án fræðslu. Já, í skólanum er tabú ef þú átt samkynhneigða mömmu eða pabba, tvær mömmur eða tvo pabba og þessu verður að breyta.
Þann 27. júní n.k. munu lög sem lagfæra réttarstöðu samkynhneigðra á Íslandi taka gildi. Atkvæðagreiðsla fór fram á Alþingi 2. júní og voru lögin samþykkt með 41 atkvæði. Enginn greiddi atkvæði á móti og enginn sat hjá en 22 þingmenn voru fjarverandi.  Lögin taka svo gildi á alþjóðlegum baráttudegi samkynhneigðra, 27 júní, en dagurinn sá er kenndur er við átökin í Christopher Street fyrir 37 árum.
Með þessari lagasetningu skipar Ísland sér í fremstu röð ríkja í heiminum hvað varðar mannréttindi lesbía og homma.