15.1.2007 | 11:36
Starfsheitið skiptir öllu máli!
Ég fékk þessa frábæru frásögn senda frá frænku í ameríkunni og bara varð að snara henni yfir á íslenskuna þar sem sagan er verulega góð að mínu mati.
Ung kona var að endurnýja ökuskirteinið sitt á lögreglustöðinni og þjónustufulltrúinn spyr hana um starfsheiti. Konan hikar, óviss um hvernig hún eigi að skilgreina starfsheiti sitt. Þjónustufulltrúin spyr aftur: "Ertu með starfsheiti eða ertu bara ? "Aðvitað hef ég starf segir konan þá, ég er móðir". Við skráum nú það ekki sem starfsheiti en ég get svo sem sett, 'húsmóðir' sagði þjónustufulltrúinn og það vottaði fyrir samúð í röddinni.
Nokkrum vikum seinna var sama kona í svipaðri aðstöðu en núna á bæjarskrifstofunni. Fulltrúinn, greinilega "career" kona spyr um starfsheiti. Eitthvað fékk ungu konuna til að svara snögg að bragði, "Ég er verkefnastjóri á sviði uppeldis- og mannlegra samskipta." Fulltrúin hikaði eins og hún hefði ekki heyrt titilinn og konan endurtók hægt og rólega. Fulltrúin skrifaði tiltilinn og einhvernvegin breyttist viðmótið á örstundu. "Mætti ég spyrja þig hvað þú gerir í starfi þínu", sagði hún greinilega með nýjum áhuga.
Yfirveguð svaraði unga konan að bragði; "Ég stunda langtíma rannsóknir á mínu sviði (Hvaða móðir gerir það ekki?) bæði innan rannsóknarstofunnar og á vettvangi, (venjulega kallað bæði inni og úti). Ég hef þegar fengið fjórar viðurkenningar fyrir störf mín (s.s. fjórar dætur). Þetta starf er eitt af þeim mest krefjandi á mannúðarsviði (Er einhver mamma ósammála?).Vinnudagurinn hjá mér fer aldrei niður fyrir 14 tíma (24 tímar eru nær því).Starfið mitt er mun meira krefjandi en flest störf á sviði viðskipta en launin eru ánægja meira en fjárhagsleg. Einhver ný virðing var í rödd fulltrúans, hún kláraði að fylla út skjalið og stóð svo upp og fylgdi ungu konunni að dyrunum, opnaði þær fyrir hana og kvaddi.
Þegar konan ók inn innkeyrsluna heima hjá sér uppveðruð af þessum nýja heillandi "career" fögnuðu henni við heimkomuna þrír aðstoðamenn verkefnisins þ.e. á aldrinum 13, 7 og 3ja ára. Uppi á efri hæðinni heyrðist í nýjasta tilraunamódelinu (6 mánaða) í verkefninu. Henni leið eins og hún hefði skorað stórt í skriffinnskuveldi kerfisins og var nú skráð innan kerfisins mun virðulegri en "bara ein mamman enn". Móðurhlutverkið! Þvílíkur ferill og sérstaklega þegar svona virðulegur titill er komin á skrifstofuhurðina (útidyrnar).
Hér vinnur:
Jóna Jónsdóttir
Verkefnastjóri á sviði uppeldis- og mannlegra samskipta.
Myndaalbúm
Færsluflokkar
Af mbl.is
Innlent
- Ráðin til að rýna í rekstur skólans
- Leikskólinn Múlaborg stækkaður verulega
- Tveir fluttir á sjúkrahús eftir rútuslys við Hellu
- Rútuslys við Hellu - Hópslysaáætlun virkjuð
- Mikið áhorf á Áramótaskaupið
- Halla Bergþóra lögreglustjóri áfram
- Matvælakjallarinn kominn á sölu
- Varað við flughálku á vestanverðu landinu
- Tvöföld spurn eftir leyfum í Elliðaánum
- Hlýnar þegar líður á daginn
Erlent
- Skipuleggja fund: Hann vill hittast
- Myndir: Hamfarir í Los Angeles
- Gróðureldarnir í Los Angeles: Tíu látnir
- Kom úr felum og var handtekin
- Líklega dýrustu gróðureldar í sögu Bandaríkjanna
- Hvetur Evrópu til að halda kúlinu gagnvart Trump
- Þremur milljónum skráninga lekið
- Ríkisstjórn Trumps virðist ekki átta sig á málinu
- Vongóð um að loks taki að lægja í LA
- Eldarnir í LA: Fólk er dofið
Fólk
- Fyrrum heimili Matthew Perry brann til kaldra kola
- Gamlar myndir kynda undir systkinastríð
- Skellti sér í spandexgallann 40 árum eftir frumsýningu
- Sökuð um lygar af fjölskyldu og vinum
- Laufey þakklát slökkviliðsmönnum
- Fer fögrum orðum um eiginkonuna
- Skilja eftir 17 ára hjónaband
- Það hefði örugglega verið minn banabiti
- Staðfesta dánarorsök Liam Payne
- Hollywood-stjörnur missa heimili sín
Tenglar
Innlendir
Erlendir
- ILGA
- 365 GAY
- IGLHRC The International Gay and Lesbian Human Rights Commission
- Rainbow Network
- Gay Politics and Law
- GALA Suður - Afríka
- Children with LGBT parents
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.