28.5.2007 | 20:05
Tinky Winky og handtaskan
Þetta er auðvitað bara fyndið. Nú má aumingja Tinky hinn fjólublái ekki bera handtösku. Það er svo hommalegt. Í yfirlýsingu frá pólska umboðsmanni barna segir að talið sé að Tinky sé karlkyns. Hvernig er hægt að vera hvorukyns hommi?
Ég þarf endilega að rifja upp með mömmu hvaða leikföng ég lék með þegar ég var stelpa. Nema kanski það sé Rannveigu og Krumma að þakka að ég er samkynhneigð...hummm..
Þetta er svo sem ekki ný hugmynd hér er margra ára gömul frétt á BBC News sem Frú Sowinska hefur örugglega rekist á:
http://news.bbc.co.uk/2/hi/entertainment/276677.stm
Pólsk yfirvöld rannsaka hvort Stubbarnir séu samkynhneigðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:19 | Facebook
Tenglar
Innlendir
Erlendir
- ILGA
- 365 GAY
- IGLHRC The International Gay and Lesbian Human Rights Commission
- Rainbow Network
- Gay Politics and Law
- GALA Suður - Afríka
- Children with LGBT parents
Athugasemdir
Úff,
Ragnhildur Sverrisdóttir, 29.5.2007 kl. 11:49
loksins þegar Jerry "moral majority" Falwell er dauður taka Pólverjar við sér! Jerry þessi var sannfærður um að Tinky Winky væri hommi af því að hann er lillablár, með þríhyrnt loftnet á hausnum og með handtöskuna Ég hef að vísu alltaf verið honum þakklát fyrir að setja þetta andsk.... bull út úr sér, ég er nefnilega ánægð með andstæðinga sem gera sig að stórkoslegum fíflum..
Ragnhildur Sverrisdóttir, 29.5.2007 kl. 11:51
Mikið er ég sammála, var einmitt að lesa söguna alla á BBC. reyndar kemur Anna Kristjáns með góða hugmynd varðandi pólsku frúnna á sínu bloggi.
http://velstyran.blog.is/blog/velstyran/entry/223917/
Svanfríður Lár, 29.5.2007 kl. 12:17
Ég er einmitt búin að vera að ræða þetta á öllum bloggum í morgun. Takk fyrir þennan tengil. Ég var búsett í Bretlandi þegar þessi umræða kom upp í landi hinna frjálsu og hugrökku, og hlógu Bretar dátt að þessu! Teletubbies höfðu mikið verið umræddir í bretlandi en auðvitað á allt öðrum nótum! Pólverjar eru frekar eftirá... ekki í lagi með þessa konu heldur! Hún ætti að finna sér annan starfsvettvang!
Laufey Ólafsdóttir, 29.5.2007 kl. 13:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.